Atlas Hús var stofnað með það að markmiði að gera fólki kleift að láta draumahúsið sitt verða að veruleika á hagkvæman og einfaldan hátt. Að baki fyrirtækinu standa þrír sérfræðingar með ólíkan en samverkandi bakgrunn, arkitekt, byggingarverkfræðingur og iðnaðarverkfræðingur.
Við bjóðum upp á heildarlausn þar sem þú færð faglega leiðsögn frá fyrsta degi. Arkitekt vinnur með þér að því að hanna heimili sem hentar þínum þörfum og lífsstíl, á meðan byggingarverkfræðingur sér um að leiða þig í gegnum allt ferlið, allt frá leyfisveitingum og reglugerðum til byggingastjórnunar og framkvæmdar. Þannig tryggjum við skýrt, öruggt og áreiðanlegt ferli frá upphafi til enda.
Við vinnum með reyndum framleiðanda sem hefur yfir 25 ára reynslu af framleiðslu einingahúsa. Húsin eru framleidd í Lettlandi eftir ströngum gæðakröfum og eftirliti, og byggð eftir teikningum arkitekts sem tryggir sveigjanleika í hönnun og lausnum. Veitt er tíu ára ábyrgð á húsunum.
Markmið Atlas húsa er að einfalda byggingarferlið, auka gagnsæi og gefa viðskiptavinum skýra yfirsýn yfir kostnað og framkvæmd. Við leggjum áherslu á gæði, fagmennsku og traust, svo þú getir byggt heimili sem stenst þínar væntingar.
Ragnar Steinn Clausen- Byggingarverkfræðingur
Ragnar er byggingarverkfræðingur með yfirgripsmikla reynslu af hönnun, ráðgjöf og framkvæmdum. Hann leggur áherslu á vandaðar lausnir, skýra ferla og örugga framvindu. Með fagmennsku, nákvæmni og traustri þekkingu tryggir hann skilvirkni og nákvæm vinnubrögð.
8688
Edda Doris Verkefnastjóri
Edda er iðnaðarverkfræðingur með víðtæka reynslu af framkvæmdaverkum og verkefnastjórnun. Hún leggur áherslu á skilvirkni, skipulag og áreiðanlega eftirfylgni frá upphafi til enda.
6910855
Aron Freyr - Arkitekt
Frá árinu 2016 hefur Aron komið að fjölbreyttum verkefnum á sviði arkitektúrs og húsahönnunar. Hann hefur sterka tilfinningu fyrir rými, efnisvali og heildarmynd verkefna, ásamt góðum skilningi á framkvæmdum og uppbyggingu mannvirkja Hann hefur einnig lokið námskeiðinu Ferli byggingarframkvæmdar frá upphafi til enda.
6993076