Construction workers building a house with a crane lifting a wall section in a mountainous area with snow-capped peaks in the background. There are blueprints and a yellow helmet on a table in the foreground.

Þjónustan okkar

Frá hugmynd að þínu heimili:

Svona vinnum við saman:

​1. Hönnun

Arkitektinn okkar hannar draumahúsið með þér og sér um að senda aðaluppdrætti sem eru svo samþykktir hjá byggingarfulltrúa.

​2. Tæknilegar lausnir

​Til að tryggja að húsið standist íslenskar kröfur hvað varðar burðarþol, einangrun og lagnir og að farið sé eftir íslenskum byggingarreglugerðum vísum við á okkar traustu samstarfsaðila sem sjá um séruppdrætti, fara yfir reiknað burðarþol, lagnahönnun og rafmagnshönnun sem eru sérsniðin að húsinu.

3. Leyfi

​Byggingarstjórinn okkar tekur við og sér um öll samskipti við hið opinbera svo þú þurfir þess ekki. ​Við söfnum undirskriftum iðnmeistara, skilum inn ábyrgðum og sækjum um sjálft byggingarleyfið.

4. Framkvæmd

​Húsið er framleitt í verksmiðjunni og flutt til landsins. Við komum þér í samband við byggingastjóra og iðnmeistara. ​Við skipuleggjum áfangaúttektir og tryggjum að vinnan sé samkvæmt teikningum. Við aðstoðum við að koma á smíðatryggingu og fyrsta brunabótamati þegar húsið er fokhelt.

​Af hverju að velja okkur?

Þú þarft ekki að leita að mörgum mismunandi fagaðilum sem sparar tíma og kostnað. Sú sérþekking sem er til staðar hjá Atlas Húsum tryggir það að arkitektinn okkar og hönnuðir þekkja einingarnar og verkferlið út og inn. Við tryggjum að öll leyfi og ábyrgðir séu í lagi frá fyrsta degi.