Ferlið
1. Fyrsta viðtal
Fyrsti fundur með arkitekt er án allra skuldbindinga. Þar förum við yfir þarfir, hugmyndir og möguleika ásamt því að geta áætlað verð miðað við væntingar.
2. Hönnun
Arkitekt vinnur með þér að því að móta húsið út frá þínum þörfum, hugmyndum og fjárhagsramma. Fyrsti fundur er án skuldbindinga.
Ef farið er af stað með hönnun og ekki verður af kaupum áskilur Atlashús sér rétt til að innheimta hönnunargjald. Við greiðslu hönnunargjalds fær viðskiptavinur afhentar teikningar og hönnunargögn sem unnin hafa verið. Ef samningur er gerður um kaup á húsi gengur hönnunargjaldið að fullu upp í kaupverð.
3. Tilboð
Þegar teikningar eru tilbúnar er húsið sent í verðkönnun og þú færð endanlegt tilboð. Engin skuldbinding er til staðar fyrr en tilboðið er samþykkt.
4. Samningur
Við undirritun samnings er greitt 15% inn á húsið. Eftirstöðvar eru greiddar 8 vikum fyrir afhendingu.
5. Framleiðsla
Húsið er framleitt hjá traustum verktaka í Lettlandi og fylgjum við ferlinu eftir frá upphafi til enda.
6. Undirbúningur lóðar
Við aðstoðum við tengingu við iðnmeistara og undirbúning lóðar ef þess er óskað.
7. Leyfi og umsóknir
Atlashús aðstoðar við undirbúning og skil á gögnum vegna byggingarleyfa ásamt samskiptum við viðeigandi yfirvöld. Endanleg ákvörðun um útgáfu leyfa er ávallt á hendi viðkomandi stjórnvalda.
8. Afhending
Húsið er afhent samkvæmt samningi. Frá fullunnum teikningum má gera ráð fyrir 7–10 mánaða afhendingartíma.