Selholt er vel skipulagt og nútímalegt 120 fm einingahús sem sameinar glæsilega hönnun og góða nýtingu rýmis.
Húsið er með þremur svefnherbergjum, tveimur baðherbergjum, geymslu og rúmgóðu alrými þar sem stofa og eldhús mynda opið og bjart rými og sjónvarpshorn er stúkað af.
Stórir gluggar og góð tenging við útisvæði skapa notalegt flæði milli inni- og útirýmis. Hátt er til lofts.