Við hönnum og byggjum draumahúsið með þér

Hvort sem þú ert að byggja lítið eða stórt hús sjáum við um allt ferlið – frá fyrstu hugmynd að afhending. Atlas Hús sér um allt ferlið frá teikningum og skipulagi til framkvæmdar og afhendingar. Við leggjum áherslu á góða þjónustu, fast verð og vönduð hús.

A modern black house with large glass windows and a deck, situated in a vast, open landscape with mountains in the background, a river flowing nearby, and overcast skies.

Einföld leið að þínu draumahúsi

Frá 260.000 kr/m2

Kaupferlið:

1. Fyrsta viðtal
Fyrsti fundur með arkitekt er án allra skuldbindinga. Þar förum við yfir þarfir, hugmyndir og möguleika.

2. Hönnun
Arkitekt vinnur með þér að því að móta húsið. Innifalinn er ákveðinn fjöldi klukkustunda í hönnun. Ef ekki verður af kaupum er greitt fyrir unna vinnu og teikningar afhentar. Ef samningur er gerður gengur hönnunargjaldið upp í kaupverð.

3. Tilboð
Þegar teikningar eru tilbúnar er húsið sent í verðkönnun og þú færð endanlegt tilboð. Engin skuldbinding er til staðar fyrr en tilboðið er samþykkt.

4. Samningur
Við undirritun samnings er greitt 15% inn á húsið. Eftirstöðvar eru greiddar 8 vikum fyrir afhendingu.

5. Framleiðsla
Húsið er framleitt hjá traustum verktaka og við fylgjum ferlinu eftir frá upphafi til enda.

6. Undirbúningur lóðar
Við aðstoðum við tengingu við iðnmeistara og undirbúning lóðar svo allt sé klárt fyrir afhendingu.

7. Leyfi og umsóknir
Við sjáum um samskipti við yfirvöld og öll nauðsynleg leyfi þannig að ferlið gangi hnökralaust.

8. Afhending
Húsið er afhent samkvæmt samningi. Frá fullunnum teikningum má gera ráð fyrir 7–10 mánaða afhendingartíma.

Infographic showing four steps: 1) Hugmynd & framkvæmd with a pencil icon, 2) Húnnun with a house icon, 3) Framleiðsla with a factory icon, 4) Afding with a truck icon. Each step has a description in Icelandic about home construction and delivery process.
A comparison of two modern wooden houses with glass doors and windows, set outdoors on a lawn with trees and rocks. The house on the left is 80 square meters, costs 24 million ISK, and has two bedrooms, one bathroom, and a sofa and fireplace with an open living room. The house on the right is 120 square meters, costs 35 million ISK, and has three bedrooms, two bathrooms, and an open living room, both set against a partly cloudy sky.

Þín hugmynd - einfalt ferli - vönduð hús

Frá fyrsta skrefi vinnur þú með reyndum arkitekt sem er innifalið í þjónustunni og leiðir hönnunina út frá þínum þörfum og þinni sýn.

Með vönduðum timbureiningum og skilvirku byggingarferli tryggjum við hraðari uppbyggingu, betri kostnaðaryfirsýn og einfaldari leið að draumahúsinu þínu.