Einföld leið að þínu draumahúsi
Frá 260.000 kr/m2
Kaupferlið:
1. Fyrsta viðtal
Fyrsti fundur með arkitekt er án allra skuldbindinga. Þar förum við yfir þarfir, hugmyndir og möguleika.
2. Hönnun
Arkitekt vinnur með þér að því að móta húsið. Innifalinn er ákveðinn fjöldi klukkustunda í hönnun. Ef ekki verður af kaupum er greitt fyrir unna vinnu og teikningar afhentar. Ef samningur er gerður gengur hönnunargjaldið upp í kaupverð.
3. Tilboð
Þegar teikningar eru tilbúnar er húsið sent í verðkönnun og þú færð endanlegt tilboð. Engin skuldbinding er til staðar fyrr en tilboðið er samþykkt.
4. Samningur
Við undirritun samnings er greitt 15% inn á húsið. Eftirstöðvar eru greiddar 8 vikum fyrir afhendingu.
5. Framleiðsla
Húsið er framleitt hjá traustum verktaka og við fylgjum ferlinu eftir frá upphafi til enda.
6. Undirbúningur lóðar
Við aðstoðum við tengingu við iðnmeistara og undirbúning lóðar svo allt sé klárt fyrir afhendingu.
7. Leyfi og umsóknir
Við sjáum um samskipti við yfirvöld og öll nauðsynleg leyfi þannig að ferlið gangi hnökralaust.
8. Afhending
Húsið er afhent samkvæmt samningi. Frá fullunnum teikningum má gera ráð fyrir 7–10 mánaða afhendingartíma.
Hágæða einingahús í yfir 25 ár
Frá hugmynd að heimili - hönnun án takmarkana
Hjá Atlashúsum ræður þú hönnuninni. Við gerum draumahúsið þitt að veruleika þar sem áhersla er á gæði og verð sem stenst samanburð.
Frá fyrsta skrefi vinnur þú með reyndum arkitekt sem er innifalið í þjónustunni og leiðir hönnunina út frá þínum þörfum og þinni sýn. Við hjá Atlashús sjáum um allt ferlið, frá fyrstu hugmynd og teikningum til skipulags, framkvæmdar og afhendingar.
Með vönduðum timbureiningum og skilvirku byggingarferli tryggjum við hraðari uppbyggingu, betri kostnaðaryfirsýn og einfaldari leið að draumahúsinu þínu.
Reiknaðu áætlað verð og taktu fyrsta skrefið í dag.