Drangholt er vel skipulagt og nútímalegt 110 fm einingahús sem sameinar glæsilega hönnun og góða nýtingu rýmis.
Húsið er með þremur svefnherbergjum og er svefnloft í einu þeirra, tveimur baðherbergjum, þvottahúsi og geymslu. Rúmgott alrými sameinar stofa og eldhús og mynda opið og bjart rými með gólfsíðum gluggum og rennihurðum út. Sjónvarpshorn er stúkað af.
Stórir gluggar og góð tenging við útisvæði skapa notalegt flæði milli inni- og útirýmis. Hátt er til lofts.