Vönduð einingahús á góðu verði
hönnuð fyrir íslenskar aðstæður
Þín hugmynd - einfalt ferli - vönduð hús
Arkitekt vinnur með þér frá byrjun og leiðir hönnunina út frá þínum þörfum.
Með vönduðum timbureiningum og skilvirku byggingarferli tryggjum við hagkvæmt verð, hraða uppsetningu, betri kostnaðaryfirsýn og einfaldari leið að draumahúsinu þínu.
Við hönnum og byggjum draumahúsið með þér
Hvort sem þú ert að byggja lítið eða stórt hús sjáum við um allt ferlið. Húsin okkar eru framleidd í Lettlandi samkvæmt norrænum gæðastöðlum og hönnuð samkvæmt íslenskum byggingarreglugerðum. Við vinnum með CE-vottaðar byggingarlausnir og sérhönnum hvert hús. Arkitektinn okkar teiknar upp húsið samhliða þér og við sjáum svo um að sækja um öll tilskilin leyfi og allt skipulag tengt framkvæmd og afhendingu. Við leggjum áherslu á góða þjónustu, fast verð og vönduð hús sem standast íslenskar aðstæður.
Einföld leið að þínu draumahúsi frá 240.000 kr/m2
Ferlið:
1. Fyrsta viðtal
Fyrsti fundur með arkitekt er án allra skuldbindinga. Þar förum við yfir þarfir, hugmyndir og möguleika.
2. Hönnun
Arkitekt vinnur með þér að því að móta húsið. Innifalinn er ákveðinn fjöldi klukkustunda í hönnun. Ef ekki verður af kaupum er greitt fyrir unna vinnu og gögnin afhend. Ef samningur er gerður gengur hönnunargjaldið upp í kaupverð.
3. Tilboð
Þegar teikningar eru tilbúnar er húsið sent í verðkönnun og þú færð endanlegt tilboð. Engin skuldbinding er til staðar fyrr en tilboðið er samþykkt.
4. Samningur
Við undirritun samnings er greitt 15% inn á húsið. Eftirstöðvar eru greiddar 8 vikum fyrir afhendingu.
5. Framleiðsla
Húsið er framleitt hjá traustum verktaka í Lettlandi og fylgjum við ferlinu eftir frá upphafi til enda.
6. Undirbúningur lóðar
Við aðstoðum við tengingu við iðnmeistara og undirbúning lóðar ef þess er óskað.
7. Leyfi og umsóknir
Við sjáum um samskipti við yfirvöld og öll nauðsynleg leyfi þannig að ferlið gangi hnökralaust fyrir sig.
8. Afhending
Húsið er afhent samkvæmt samningi. Frá fullunnum teikningum má gera ráð fyrir 7–10 mánaða afhendingartíma.