Ásholt er glæsilegt og vel skipulagt 140 fm fjölskylduhús hannað með það i huga að skapa góða rýmisnýtingu og nútímalega hönnun. Stórir gluggar og góð tenging við útisvæði skapa fallegt flæði milli inni- og útirýmis og hátt er til lofts sem eykur rýmiskenndina.

Húsið er með fjórum svefnherbergjum, þar af hjónasvítu með sér baðherbergi, tveimur baðherbergjum með sturtu, rúmgóðri geymslu og sér sjónvarpsherbergi.

Stórt og bjart alrými þar sem stofa og eldhús mynda opið og rúmgott rými skapar notaleg rými fyrir fjölskylduna.

Eitt svefnherbergjanna býður upp á möguleika á að útbúa svefnloft.